allt ađ hafastElfa Björk Kristjánsdóttir
Ég ætla að tileinka þetta blogg mömmu minni, jújú konan á afmæli í dag
..45 ára alveg hund-gömul.. nei djók.. þú ert best mamma! ..reddaði þessu vel þarna
þetta er hún þarna á Mjóeyrinni sinni
Allaveganna er ég alveg að verða búin í prófunum, allt að hafast og ég get sko ekki beðið með að klára þetta.
Þetta er búið að vera ansi strembið get ég fullyrt, lítill svefn, lítið borðað og mikið mikið stress!! Æða- og hjartakerfið í mér ætti allveganna að gera í góðri æfingu eftir þessa törn get ég sagt ykkur! En eins og ég hugsa þetta þá hef ég gert mitt og ég vona svo sannarlega að það sé nóg, svo ég vona bara það besta en er viðbúin því versta.
Á morgun ætla ég að vera flott á því og fljúga til Reykjavíkur! ..úff ég hlakka til, heimsækja Auði, Hildi, Steinar og fleiri, ætla nú líka eitthvað í Kringluna og ef ég þekki mig rétt þá á ég nú ekki eftir að vera í vandæðum með að eyða einhverju þar humm.. svo á ég víst að að fara líka til læknist og eitthvað rugl en þetta á allaveganna eftir að verða svo skemmtilegt
Svo er planið að koma heim á laugardeginum og reyna að ná fyrir leikinn hjá strákunum en svo ætla ég á blótið í sveitinni um kvöldið. Gott plan já!
Svo á nú bara að safna kröftum fyrir komandi önn ..úff ekki veiti af þar sem ég ætla að vera úber dugleg, ...humm æi segir maður þetta ekki alltaf!?
Allaveganna á þetta vikufrí á svo sannarlega eftir að færa birtu í mitt svarta líf ójá!
Svo svona í endann vil ég óska Önnu Gerði til hamingju með afmælið![]()
..úff 18 ára ..það fer nú að styttast í það að maður verður sjálfu tjah fullorðin getum við sagt!!
allaveganna Anna og mamma eigiði góðan dag ![]()
